BEIB FYRIR BURÐ....GORKÚLAN BLOGGAR......OG AFTUR KEMUR HOR Í DAL....

AÐ HIKA ER SAMA OG AÐ TAPA

05.11.2011 00:50:23 / huja

Komin aftur

Já ég er komin aftur:p..það er einhver þörf fyrir að skrifa eða bulla;)...gaman væri að vita hvort einhverjar eru hér enn.þarf að tékka á því.hnippið í mig ef þið sjaið þetta:9..meira seinna...gorkúlan.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2009 01:05:11 / huja

sumarið er komið:)

 Var komin út fyrir níu í morgun.... veðrið er búið að vera æðislegt...svona á sumarið að vera, pallurinn ,potturinn,fuglarnir .grillið,..og ekki spillir það að hafa dótturina og börnin...uuumm æðislegt:):)...og veðrið á að vera svona áfram.......Var að spökulera í einu... að wörka tanið.... humm ....svakalega skemmtilega að orði komist;)... eða þannig.....og mjög inn....hvað um það.... Gullkornið er....  að það er ekkert gullkorn.... Heilræði dagsins.... farðu að sofa......Uppskrift dagsins: Taktu tannbustann þinn í vinstri hönd og finndu tannkremstúpunna og hafðu hana í hægri hönd...beindu henni að bustanum og settu snyrtilega rönd af tannkremi á bustann... lyftu hendinni sem heldur á bustanum upp að munninum og opnaðu  hann settu bustann í munninn og bustaðu í 3.  mín  upp og niður fram og aftur.....tuffaðu tannkreminu sem er í munninum í vaskinn og skolaðu munninn með vatni úr krana..... ekki úr WC....skolaðu tannbustann líka ..undir krana ! gakktu frá  tannbustanum og tannkreminu og þurrkaðu þér vel um munninn.... kysstu pabba og mömmu góða nótt  ef þarf ......í þessa uppskrift þarf 1 gr af tannkremi, slatta af vatni og tvo kossa:!:.....Góða nótt..... Hugrún tanaða tannbustakelling:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.07.2009 23:41:08 / huja

Blævængir til sýnis.............

Fyrir nokkrum árum fóru að myndast blævængir á Otkötlu digru og gerði hún allt til að fela þá fyrir umheiminum og forvitnum augum, sem mundu  líta þá hornaugum.......:^) svo fór hún út til Skotlands og hélt að það væri nú í lagi að viðra vængina... en viti menn á markaði einum var fullt af fólki ...og þar voru tvær kellur sem horfðu á vængina og önnur sagði ...sjáðu handleggina á henni!!! Otkatla digra móðgaðist herfilega og sagði snúðugt ...hefur þú litið í spegil!!!...þær hurfu mjög snögglega ...og eftir stóð Otkatla roggin;);)..... hún hélt svo áfram að fela blævængina ...þangað til í fyrra að allt í einu var henni slétt sama!!!.... ellimerki?...hver veit:lol:,,,,þetta var saga dagsins í boði Otkötlu digru......:haha::haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2009 00:51:24 / huja

Nærri ár..Gvendureyþórs!!!!!!...get ég þetta enn??

Ég veit ekki hvar ég á að byrja.....klór í haus.... og þó! um þetta leyti í fyrra var lítill einstaklingur að laumast inn í fjölskyldunna.... og er nú orðin þriggja mánaða ..stór og yndislegur:p....og sumarið var gott og skemmtilegt....eyjaferð með Birni...Borganesferð með Síjunum...ferð að Reykjum...afmælisferð með Síu til Bretlands...Keflavík með fornbílaklúbbnum...norður í land með kallinum...sem alltaf var með í hinum ferðunum...auðvita:)og alltaf var blíða....lífið hefur verið okkur gott... ekki annað hægt að segja ...allir hressir og glaðir ...þrátt fyrir kreppu og keppi:haha:veðrið leikur við okkur núna og við fórum í hringferð og hittum fólk og bíla og beinagrindur;) semsagt áhugamál okkar hjóna.....ég ætlaði svo að vera vooooða dugleg þegar ég kæmi heim...en... er búin að vera að drepast í henni.....sko hægri löppinni...og gat ekki einu sinni gengið eins og kona heldur eins og rugguhestur...arg...en ég er að lagast....Ömmubörnin stækka og stækka og eldast ...eins og allir,.... nema eg!... skil ekkert í þessu?????jæja best að láta þessu lokið...og eins og á Óskarnum... langar mig að þakka eftirtöldum aðila fyrir að ýta við mér...Ásdís:) takk....og fyrir þetta snilldarverk sem þú gerðir fyrir mig:)..kv:

                                                                      H.Otkatla rugguhryssa:) ekki á Kaldármelum

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.07.2008 19:08:19 / huja

Þroskamerki...

Hahahahahahaaaaa:)..... Ekki veitti okkur nú af að fá þroskaþjálfa til að stjórna okkur í Dölunum...Nú get ég vonað að mér takist að fullorðnast...svitn ..loksins:Ég er annars búin að vera ódugleg við tölvuna,en nú er rigning og mál að skrifa smá...það er búið að vera gaman þessar vikur og þær fljótar að líða....eitt hefur rekið annað...fjörutíu ára afmæli dótturinnar...  :)25 ára afmæli yngsta sonarins...ferð til Bretlands að heimsækja elsta soninn og hans fjölskyldu...og svona mætti lengi telja...bara gaman gaman:)mér finnst tíminn hafa fokið í burtu:) enda er nú hitabeltislægð á leiðinni:):)Mér er sagt að ,,Heim í Búðardal,, hátíðin hafi tekist vel...en ég fór í brúðkaup og var ekki með.....já, það er bara gaman að vera til þegar lífið er manni svona gott:):)....ég er í sumarfríi núna og vil nú helst vera á flakki....enda með flökkueðli í blóðinu;)...kveð að sinni...H.Otkatla...flakkari.......

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 17:52:46 / huja

Minning..ekki hefðbundin...

Ég hef unnið á stað þar sem fólk býr ....sem ekki bindur bagga sína sömu hnútum og við hin ... sem þykjumst hafa normið.....Margir þessir einstaklingar hafa ógleymanlega persónu að geyma....eins og hann Doddi ... sem við kvöddum í dag.....hann átti heimsins fallegasta bros...í sínu rúnumrista andliti......hann var orðinn þreyttur á lífinu og talaði oft um brottför... nú held ég að hann sitji í rauðum sportbíl sem hún Gunna á og keyrir..... með vindil í munnvikinu... og við hlið hans situr Hannes.... þau eru á leiðinni út að borða.... blessuð sé minning þeirra.....Hugrún Otkatla.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 23:20:22 / huja

NÝTT STARF........ NÝTT NAFN......

Það er ekki ofsögum sagt að mikið sé að gera hjá míns:lol:ný vinna tekur slatta tíma...enda er ég að læra alveg nýtt og svo er ég að vinna mér inn tíma ....til að geta verið í fríi í sumar:) .... það er ekkert smá gaman á bókasafninu... innan um hinar skruddurnar;)... ég náttlega kunni ekkert að skrá bækurnar en vældi í þeim fyrir ,,sönnan,, ..og þær tóku mig í klukkutíma kennslu... og svo var símtöl og póstur á milli... á tímabili var ég að gefast upp ... en gamla þrjóskan  hafði sitt af.... og nú gengur allt brilljant(Vala Matt);).......svo er náttlega alltaf jafn gaman að vera gjaldkeri:) svo segja má að ég sé heppin kona.... Síðan er búið að vera brjálað að gera í félagslífinu ...í síðustu viku voru þrennir tónleikar sem ég fór á.... segið svo að það gerist aldrei neitt í sveitinni.... svo eru fermingarnar byrjaðar ....og ég fer að gaula í fjórum kirkjum....  í gær fórum við að Fellsenda á afmælishátíð.... þar sem frumburðurinn okkar afhenti handrit af sögu staðarins... en hún var fengin til að skrifa það..... við vorum ansi montin af henni:):)..... JÁ SVO ER EINN FRÉTT........ ég tók mig til og skifti um  miðnafn............Heiðdal fauk og Otkatla kom í staðin.... en það er nafn sem ég sá í framættum mínum og varð mjög hrifin að.... tvær eldri systur mínar heita Heiðdal og tel ég það nóg:)...... misjöfn hafa viðbrögðin verið ..hahahahaa.....  við þessu uppátæki mínu...ein vinkona mín ætlar að láta son sinn skíra hryssu Otkötlu...hahahahahahahaaa!..... kallinn minn er hinn ánægðasti..... nú getur hann valið úr hvort hann sefur hjá.... Hugrúnu,gjaldkeranum,bókaverðinum eða Otkötlu....tíhí... ekki allir sem hafa 4 í takinu...... að lokum þetta...Kæri gamli bossinn minn ...til hamingju með drenginn þinn um daginn... sjáumst...Otkatla kveður...knús......

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 21:50:35 / huja

NÝI BÓKAVÖRÐURINN:).....

........ Í Dalabyggð er míns:).... Eg fékk vinnunna sem ég sótti um :).... svo nú fer ég á morgnanna á pósthúsið og vinn þar til rúmlega tvö...og lalla svo í næsta hús og fer á bókasafnið...eg er því komin með tvær skemmtilegar vinnur:haha::haha::haha::haha:...... svo er ég betri í löppinni.... sem betur fer.... vildi bara að  segja ykkur það......knús...Hugrún bókormur.......


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 16:11:51 / huja

STEBBI, STEBBI,OG STEBBI!!!!!!........OG ALLT HITT:)

......Jú ég komst á Stebba:).....við fórum suður á föstudag ....... mér var sleppt snemma úr vinnunni :)...og við náðum að fara og velja lit á Malibúin sem verið er að gera upp hér á Fjósum:)....svo fórum við til dóttur okkar sem ætlaði með mér á tónleikanna... gamli minn skutlaði okkur svo í höllinna um níuleitið... þegar var opnað þá brunuðum (Haltraði:)við inní sal og að grindunum sem voru við sviðiðog þar tók ég traustataki í grind ...og sleppti ekki hendi af allt kvöldið;) var alveg að drepast í löppinni...en.... þegar fyrstu tónarnir byrjuðu....þá voru gleymdir allir verkir..hehehe...já þetta voru alveg magnaðir tónleikar:)Stebbi er náttlega alltaf frábær og Gummi,er einn af betri gítarleikurum landsins,og Frissi líka á bassann:).þaðvar líka gaman að sjá Jens ....hann var alveg í banastuði......þarna héngum við á grindinni og sungum með alveg eins og við hefðum fengið borgað fyrir það.... ég veit að það eru til grúbbpiur...en ætli séu til öryggisgrindarpíur???.....allavega..... þessir rúmir tveir tímar liðu fljótt...alltof fljótt....en...þegar ég ætlaði að labba af stað ...gvendureyþórs...hvað mér var illt í löppinni.... staul....við vorum svo alla helgina hjá Síu... mjög næs.... fórum á Ask að borða og skruppum að heimsækja mágkonu mína ... bara frábær helgi...en löppin lagaðist ekkert...ég er svo búin að fara til doksa í þriðja sinn..skæl...og hann segir að ég sé með brjósklos...and... og allt hans lið...ekkert við því að gera nema taka parkódín....huhuhuhuhu...vonandi lagast þetta ... mér finnst ég vera 97 ára en ekki 57... þegar ég kjaga hér um og líkist mjög ónefndum ættingjum mínum;)......hafið það gott um páskana.... knús... Hugrún öryggisgrindarpía:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 17:43:28 / huja

Á einni löpp...................Á ég að sprauta henni!....

:$........langt síðan ég hef bloggað... er búin að vera að drepast í löppinni.. ekki það að ég noti löppina til að blogga með:lol:..get ekki gengið ...nema með herkjum ...og verkjum:haha: ekki gaman.... er samt búin að fara í vinnu og kjaga eins og 99 beinþynning..... og veslings kúnnarnir mínir vita ekki hvort þeir eiga að hlæja eða gráta.......en ég fór til doktor Saxa í morgun og hann sprautaði í lærið og nú er bara að vona það besta......krossið með mér putta og tær....VEGNA ÞESS!!!! að ég á miða á STEBBA!!!!!! á föstudaginn ...og ég verð voða, voða sár ef ég kemst ekki :cry::cry::cry:..... annað að frétta ...... ég gekk í nýstofnað fornleifafélag  Dala og Barðstrendinga.... er óttalegur forngripur sjálf og hefði örugglega lært þessa fræði ef ég hefði ekki farið í það að stofna heimili svona ung...... svo sótti ég um vinnu...... svona auka djobb hér ... í þriðja skifti sem ég sæki um þessa vinnu.....á morgun fæ ég kannske að vita hvort ég er inn í þetta skifti hehehehehehehehehehehehehehe...  en mér er svo sem slétt sama ....er í fínni vinnu...ekkert að hætta þar:)..... og var nú bara að hugsa um hvað viðkomandi stofnun væri heppin ef ég yrði ráðin :):):)... meira seinna.....knús til ykkar.........Hugrún...  Sálaraðdáandi no337:):)

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 15:42:07 / huja

árs- át- tíð 2.... eyrnamerktar íbúðir

nei ekki ritvilla heldur staðreynd:).... Fór á árshátíð grunnskólans  í gær þar sem foreldrar baka.. og borga sig inn líka enda veitir nú ekki af að styðja við skólaferðalögin... það var gaman og krakkarnir stóðu sig vel eins og vanalega....:)... bara frábært:))::):):):):):):):):)):):)...takk fyrir krakkar:) Hlöðver stóð sig rosalega vel og ég var náttlega voða montin af honum... og bara öllum hinum ...enda finnst mér eg eiga dulítið í þeim :).....mikið reyndar:).svo borðuðum við á okkur gat... omægat:)...og fórum svo heim í snjókomu og slabbi..... við vorum hálf latar samstarfskonurnar á pósthúsinnu í dag og hlökkuðum til helgarinnar;)....held að við séum búnar að lifa í velystingum síðan á Aski síðasta föstudag og þurfum smá hvíld!!!!!!!hahahahahaha... búið að vera ógó gaman hopp og hí og tralalalalalalalaaaa:)......svo kom Guðrún og litlu grjónin í heimsókn og ég var nærri búin að kála Jónasi með matarkexi..... gaf honum og mundi ekkert eftir því að hann á það til að fylla munninn :$.... dálítið mikið:$...og við fórum að heyra undarleg hljóð ...mamma hans var fljót að fatta...hjúkk ..sem betur fer.... hann var orðinn rauður og blár karl anginn8|........Að öðru...hvað finnst ykkur nauðsynlegt  að hafa í öllum bæjum stórum og smáum.....mín skoðun er..náttlega pósthús...hehehe...heilsugæslu,leikskóla verslun,skóla,íþróttahús og sundlaug... hér er hvorki íþróttahús eða sundlaug og ekki hefur mátt um það ræða..það er nebblega inn á Laugum ...sem tekur 15 mín að keyra ..í sumarfæri notabene....þessvegna tók ég heljarstökk afturábak (í huganum:)...þegar ég sá að á fundi sveitarstjórnar...... kom fyrirspurn frá einum sveitarstjórnarm.hvort ekki ætti að fara að gera eikkað í þeim málum... HÚRRA....tek ofan fyrir henni:)....ef ég ætlaði að flytja út á land ... myndi ég fara þangað sem aðstaða er góð fyrir börn...Að lokum.... það má ekki hrekja ungafólkið í burt en ...fólk þarf að fá að sitja við sama borð hvort sem það ert stjóri eða óbreyttur..... annað að frétta veðrið er frábært svona íbyrjun síðasta langa vetrarmánaðar.... það eru tvær vikur í páskavikunna og styttir það rosalega mikið marzmánuð.....jæja best að kíkja á kvinnurnar mínar á blogginnu....knús og klemm:)Hugrún sem ætlar að læra að synda......í Búðardalslaug:).... fyrir sextugt....


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 18:04:10 / huja

FRÁBÆR ÁRSHÁTÍÐ AÐ BAKI.........

:lol:.Það var ekkert smá gaman á síðustu helgi:lol::lol:....Allt gekk upp og var frábært:haha:.....hótelið var fínt...allavega rúmið;).....félagsskapurinn frábær og skemmtunin æði.... við fórum suður á föstudag og byrjað var á því að fara með kellinguna í yfirhalningu...strípur klippingu og augnabrúna litun...hárgreiðslukonan mín tjáði mér að ég hefði ekki komið í klössun síðan í ágúst í fyrra8|...enda er þaðnúsvona með hryssurnar gömlu í sveitinni ..það er rakað af þeim á vorin....ég var orðin ansi litförótt;)... svo fórum við á hóteliðog bókuðum okkur inn og leytuðum uppi Ástu og Glbert...og fengum þau með okkur út að borða...fórum á Ask ...og nammi namm þvílíkur matur....og gaman saman:).... hittum svo aðeins íslandspóst fólk sem var á hótelinu..en skriðum svo bara í rúmið.... svo fórum við Ásta í hádegisverðar fund í Laugardagshöll  á laugardag....og síðan fórum við gömlu hjúin aðeins á skverin ...entumst ekki lengi...og drifum okkur á hótelið.... hvíldum okkur meira og klæddum okkur í sparileppanna og fórum svo niður í lobbý ...þar sem boðið var upp á drykk... hittum fullt af skemmrilegu fólki og skáluðum í bak og fyrir:)........svo voru rútur í boði upp í höll og salurinn þar var fullur ....vá ...1500 manns voru þarna....og allt gekk upp...maturinn var frábær.... veislustjórarnir æði..... Laddi í mörgum gerfum...hehehehehehehehe......Páll Óskar... og Gaðar  Corters, góðir og Magni og hljómsvet æði... ég er enn aum í löppunum eftir allt skröltið ..dansinn meina ég;)....... við fórum heim á hótel sæl og þreytt:)...svo eftir morgunverð á sunnudag fórum við á stað heim... kíktum aðeins í heimsóknir og til grísla í Bónus... sóttum strákana hennar Guðrúnar og drifum okkur heim:).... TAKK FYRIR OKKUR ÍSLANDSPÓSTUR!!!!!!..annað að frétta..humm... reyni að labba smá á hverjum degi....er farin að taka lýsi á hverjum degi:)...dugleg.... borða alltof mikið brauð ..... eins og snjótittlingarnir..... HEY og hér eru minka og músaför fyrir utan húsið ...og ekki nóg með það!!!!...ég heyrði í tófu  í fyrradag hérna upp í móunum ... þannig að ég bý í villtu vestri.....knús til ykkar ...Hugrún villingur:d:d:d:d

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 17:37:23 / huja

HEY....

.... JÆJA hvað skyldi maður hanga lengi inni núna:$.... talvan er búin að vera í messi ekki messu... síðan ég fór á þorrablótið í ;;góða veðrinu ;;síðasta föstudag....þegar við komum heim var hún full af hestum úr grísku goðafræðinni...íha... sem betur fór...hjúkk ...gat Guðrún mín  rekið trunturnar út:lol:.......svo ég er komin í samband aftur:)..... En að blótinu aftur... við fórum í brjál veðri og hálku suður og Brattabrekka var næstum búin að killa mig ..skræfuna:)... en með styrkri stjórn hans gamla míns á Subaróinum komumst við ,,söður,,og fórum svo upp í Árbæjarsafn á fornbílakalla og kvenna þorrablót í einu af gömlu húsunum...og hvað er meira viðeigandi:lol: ....allt var á floti utandyra.... en allt bara voða rólegt og hæglátt inni..... borðað mikið, drukkið í hófi og sagðir nokkrir velvaldir brandarar:).....margir voru svo farnir um tólf..... svo við hringdum í soninn og létum sækja okkur.....þegar við komum heim til hans ...hehehe...þá var hann búin að búa fallega um þau gömlu og ...stilla upp fötu við rúmstokkinn....hahahahahahaha..brandarakall......sem betur fór þurftum við ekki á henni að halda...... svo er vikan búin að líða ótrúlega hratt... kominn föstudagur.....og ekkert að gera um helginna ....búhú;)ég þarf að kíkja á bloggurnar og skanna inn myndir ...og labba...... ef  fj...hálkan fer......Ég var að spá í einu....hvernig horfið þið á fréttir?.... ég er svona leikmynds horfari... stend mig að því að horfa á baksviðið..og gleyma aðal;) börn að forvitnast..svín í  vegarkanti að róta í rusli...blóm og tré...og sit ég með aulasvip og spyr...hvað sögðu þau;)?.....löngum verið skrítin kona:).... að þessu sögðu  kveð ég ykkur og segi ...góða helgi og ...knús:)...Hugrún skrítna.......

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 21:44:22 / huja

ER að koma niður á jörðina.....

........ eftir frábæra helgi:D:D:D:D:D:D:D:D....það var gaman að fá krakkanna....gaman að fara á þorrablótið....alveg frábært!!!!!!!!skemmtiatriðin voru frábær........ maturinn líka og KELI!..... AF ÞVÍ AÐ ÉG VEIT.... AÐ ÞÚ LEST BLOGG HJÁ OKKUR AÐAL GELLUNUM... JÁ ÞÁ VAR HLJÓMSVEITIN FÍN:D.....tíminn leið alltof fljótt og ballið var ekki búið þegar ungafólkið vildi fara heim ... og þau gömlu drusluðust svo á eftir ......hahahaha........ veðrið var hinsvegar alveg brjál, á sunnudag og fóru krakkarnir ekki fyrr en á mánudag..... krakkarnir.... hehehehe að verða fertug sum ....og aðeins yngri.... 8| ég er svo...eða við ....að fara aðra helgi á föstudeginum á árshátíð fornbílaklúbbsins....og ég reyndi að fara að fyrirmælum gamla bossins míns ...að láta bjóða mér á mjólkurstöðvarhátíðina ...en....hann sonur minn sagði að það væri búið að loka fyrir skráningu....hehehhehehehehe...;) jæja hér er alltaf sama blíðan ...eða þannig.... sannkallað skítaveður:evil:.... en við hljótum þá að fá vor í vor ...sonna alvöru8)..... ég veit annars ekkert

hvenær ég á að fara í frí í sumar og enga hugmynd um hvað ég á að gera í fríinu;).....í fyrsta skifti í nokkur ár er ég alveg hugmyndasnauð.... tómur kollur...heheheh ...ekki nýtt;)annað að frétta... ne... sendi ykkur knús...Hugrún gella......


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 20:47:45 / huja

snjór og þorrablót....

...........snjórinn í algleymi...og ég er farinn að kunna að meta hann ...þökk sé meðal annars henni Guðrúnu minni... bíladellukonu og snjó aðdáenda......þorrablótið er annað kvöld....og Sía og Hákon koma ásamt helstu aðdáendum sínum;)..... Svo er Hjörtur í nefndinni... þannig að það vantar bara Alla og hans helsta aðdáenda......... nú er bara að leggjast á bæn og biðja um sæmilegasta veður..... heyrumst eftir helgi...SKÁL!! HUGRÚN harðfiskur.......

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
RSS tengill
Klukkan