..........óvísindaleg tilraun.... ég áhvað í gær að sleppa ddv fæði
........ fyrst var það vegna aðstæðna ......en svo langaði mig að
sjá og finna munin á líðan minni ef hann væri einhver...og hér
kemur sagan..tatatatata.......fór að jarðaför í gærmorgun og í
framhaldi af því í erfisdrykkju......þar var boðið upp á þetta
hefðbundna....brauðrétti og tertur...... ég fékk mér einu sinni á
diskinn og bara frekar lítið af hvoru

..... síðan brunaði ég á
árshátíð barnaskólans ( tertuveislan sem hefur verið mér hælbítur í
gegnum árin)skemmtiatriðin voru góð og börnin ,,mín,, stóðu sig
rosavel........eftir atriðin var semsagt boðið uppá ....getið þið
....kökur og brauðrétti ég fyllti diskinn

....og mér var orðið
hálf ómótt.... þegar ég skokkaði heim...þar setti ég steik í ofn og
fór svo í eina heimsókn í sambandi við jarðaförina..... þar stútaði
ég einni kleinu........ þegar ég kom heim var svo steikin
tilbúin.......og ég borðaði sósu.......og brúnaðar kartöflur.... og
rauðvínsglas...... og svo slatta af lakkrís ...... ég fór að sofa
með ömmu hennar Rauðhettu í maganum

og vaknaði með magann fullan
af grjóti

....eins gott að ég þarf ekki að drekka úr brunni!....
tilrauninni er lokið og mig langar ekki að endurtaka hana


...DDV
ER MÁLIÐ


....... MÉR LÍÐUR SVO MIKLU BETUR

.... eitt er líka
....ég er komin á hitakófs aldurinn

en ddv fæðið verður þess
valdandi að ég losna við það ...en ...í nótt svitnaði ég eins og
svín

....... svo...lokaorð þessarar vísindalegu tilraunar eru
...DDV ROKKAR.......knús ....HUGRÚN...... sem fórnaði sér í þágu
vísindanna


.......